Það má með sanni segja að mikið hafi verið um dýrðir hjá okkur í þessari viku. Þrennir tónleikar fóru fram og hófu söngnemendur okkar í Húnabyggð leikinn. Tónleikarnir heppnuðust afar vel í alla staði og óhætt að segja að margir hafi látið ljós sitt skína í einsöngs- og hópatriðum. Þá er vert að bæta við að Helgi Páll Gíslason lauk á dögunum grunnprófi í söng og óskum við honum innilega til hamingju.
Húnabraut 26 | 540 Blönduós Sími á skrifstofu: 452 4180 Netfang: tonhun@tonhun.is |
Skrifstofa skólans er opin eftir samkomulagi. Fyrirspurnum skal beint á tonhun@tonhun.is. |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda
á netfang skólans tonhun@tunhun.is eða til viðkomandi kennara.