Tónlistarskóli Austur Húnavatnssýslu var stofnaður árið 1971 og kennsla hófst um haustið. Kennslustaðir urðu strax þrír, Blönduós, Húnavellir og Skagaströnd.
Í fyrstu var ráðinn einn kennari við skólann og stundarkennari. Nú starfa fimm kennarar í fullu starfi.
Í fyrstu var skólinn rekinn af sveitarfélögunum að 1/3, Tónlistarfélaginu að 1/3 og skólagjöldum að 1/3 en nú er skólinn rekinn af Byggðasamlagi um tónlistarskóla.
Markmið og inntak:
Hlutverk tónlistarskóla er að:
- stuðla að aukinni hæfni nemenda til að flytja, greina, skapa og hlusta á tónlist.
- búa nemendur undir að geta iðkað tónlist upp á eigin spýtur.
- stuðla að auknu tónlistarlífi í héraðinu.
Markmið Tónlistarskóla A-Hún. eru:
- að nemendur öðlist lifandi áhuga á tónlist og tónlistariðkun.
- að nemendur læri að njóta tónlistar og upplifa hana bæði sem þátttakendur og hlustendur.
- að námið efli sjálfsmynd og einbeitingarhæfni nemendans og geri hann hæfari til að taka þátt í hvers konar skapandi starfi, hópstarfi eða einstaklingsvinnu.